Velkomin á heimasíðu Eignarhaldsfélags Suðurlands (EFS)

EFS tekur þátt í stofnun og starfsemi félaga sem rekin eru á grundvelli arðsemissjónarmiða, fela í sér nýmæli í atvinnulífi og eru mikilvægur þáttur í uppbyggingu atvinnulífs á Suðurlandi.

EFS er fjárfestingarfélag sem fjárfestir í  hlutabréfum og skuldabréfum sem breyta má í hlutabréf  hjá fyrirtækjum á Suðurlandi

Fjárfestingar EFS eru í samræmi við fyrir fram mótaða fjárfestingarstefnu sem hefur arðsemi fjárfestinga og áhættudreifingu að leiðarljósi.

Félagið tekur þátt í stórum og smáum verkefnum á Suðurlandi.

Félagið vinnur í nánum tengslum við Atvinnuþróunarfélag Suðurlands (AÞS).  Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra AÞS, sem jafnframt er framkvæmdastjóri EFS, Steingerður Hreinsdóttir steingerdur@sudur.is  og í síma 480-8210